> Kynfræðsluvefurinn
Getnaðarvarnir
Hettan og sæðisdrepandi krem
Hettan
Hettan er mjúk gúmmíhlíf sem sett er upp í leggöng fyrir samfarir til að loka leghálsinum. Hún kemur í veg fyrir að sáðfrumur berist inn í legið.

Til að auka öryggi hennar er best að smyrja hana með sæðisdrepandi kremi. Hún þarf að passa vel og læknir verður að mæla hvaða stærð passar.

Hettan hentar stelpum illa því henni þarf að koma fyrir á alveg réttum stað og hafa hana þar sex tíma eftir samfarir.