Ýsan

Einu sinni ætlaði fjandinn að veiða fisk úr sjó. Þreifaði hann þá fyrir sér og varð fyrir honum ýsa. Hann tók undir eyruggana og sér þar enn svarta bletti á ýsunni. En ýsan tók viðbragð mikið og rann úr hndinni á fjanda, og er þar nú rákin svört eftir sem neglurnar runnu.

(Íslenskar þjóðsögur og ævintýri II. 1954. Jón Árnason safnaði.)