Rauðmaginn, grásleppan og marglyttan

Einu sinni gekk Kristur með sjó fram og var sankti Pétur með honum. Kristur hrækti í sjóinn og af því varð rauðmaginn. Þá hrækti líka sankti Pétur í sjóinn og af því varð grásleppan. Djöfullinn gekk á eftir þeim með sjónum. Hann sá þetta og vildi nú ekki verða minnstur. Hann hrækti því í sjóinn og af því varð marglyttan.

(Íslenskar þjóðsögur og ævintýri II. 1954. Jón Árnason safnaði.)