Þið finnið svörin við öllum spurningunum hér � vefnum
Svarið spurningunum í textasvæðin sem eru við hverja spurningu og prentið síðan síðuna út og skilið til kennarans ykkar.

Gangi ykkur vel!

Hver(jir) svara(r) spurningunum
1. Þegar álkan sem er mest úti á rúmsjó kemur í land til að verpa, hvar velur hún sér þá hreiðurstað?
2. Hvaða líkamleg einkenni eru sameiginleg flestum hvalategundum?

3. Hvaða hvalir teljast til tannhvala?
4. Hver er minnsti hvalur við Íslandsstrendur?
5. Hver er stærsti hvalur við Íslandsstrendur?
6. Hvað eru kálfar hrefnunnar langir og þungir við burð?
7. Af hvaða einkenni dregur loðnan nafn sitt?
8. Hvað einkennir hreiðurgerð fýla?
9. Hvað kalla sjómenn fýlinn?
10. Af hverju ráðast ferðir dýrasvifs að mestu?
11. Hvað geta minnstu plöntusvifin verið stór?

12. Hvernig vex og fjölgar plöntusvif sér?
13. Sagt hefur verið um fýlinn að hann sé fljúgandi......
14. Hvað einkennir kísilþörunga?
15. Hvað gerir snurpuvír fyrir hringnót?
16. Hvað er talið að mikill hluti alls fiskafla hér við land sé veiddur með hringnót?
17. Hvað kallast grámávar sem ekki hafa fengið fullorðinslit?

18. Á hvaða sérstaka hátt tengdist fuglinn rita Vestmannaeyjum í ágúst árið 1944?
19. Hvert er ummál þeirra flottrolla (Gloríuvörpu) sem notuð eru nú?
20. Loðnan er vinsæl fæða stærri fiska en á hverju lifir hún sjálf?