Þið finnið svörin við öllum spurningunum hér á vefnum.
Svarið spurningunum í textasvæðin sem eru við hverja spurningu og prentið síðan síðuna út og skilið til kennarans ykkar.

Gangi ykkur vel!

Hver(jir) svara(r) spurningunum?

1. Hvar er landgrunnið breiðast?

 

2. Hvaða fiskar eru það sem teljast til flatfiska og lifa á landgrunninu?

3. Hvað getur fullvaxin rækja verið löng?
4. Hvaða fiski er lýst svona? „Roðið er hrjúft að ofan og alsett smáum og stórum göddum sem hafa breiðan fót og aftursveigðan, hvassan brodd. Aftur eftir miðju baki og aftur á hala er röð af 12 til 19 stórum tindum.“
5. Hvar eru heimkynni humars við Ísland?
6. Á hvorri hliðinni liggur skarkoli?
7. Hvert er þvermál hefðbundinnar línu?
8. Hvað er oftast notað í beitu þegar veitt er á handfæri?
9. Á ýsu er að finna svarta bletti við eyruggana og svarta rönd eftir henni endilangri. Hver er sagður bera ábyrgð á þessu samkvæmt þjóðsögunni?
10. Brosme brosme er latneskt heiti á ákveðnum fiski, hver er hann?
11. Hvaða fiskur hefur einnig verið kallaður spraka?
12. Á hvaða veiðarfæri er að finna svokallaða höfuðlínu og grjóthoppara?
13. Nafngift hvaða lífveru er það sem tengist Íslandi
14. Hvað gerir skötuselur þegar það kemur styggð að honum?
15. Roð af hvaða fiski var eftirsótt í roðskó hér áður fyrr?
16. Til hvers eru göngin sem humarinn grefur í sjávarbotninn?
17. Hvað er algengast að mörg net séu í netatrossu?
18. Hvað þarf að baka ýsuna lengi í uppskriftinni að ýsu í ofni?
19. Getur hörpudiskur synt?
20. Hvað kallast hylkin sem egg skötunnar eru geymd í eftir að hrygnan hefur gotið þeim?