Þið finnið svörin við öllum spurningunum hér á vefnum.
Svarið spurningunum í textasvæðin sem eru við hverja spurningu og prentið síðan síðuna út og skilið til kennarans ykkar.

Gangi ykkur vel!

Hver(jir) svara(r) spurningunum?
1. Hvar er klettafjörur helst að finna?
2. Hvaða spendýr getum við fundið þar?
3. Hvaða þörunga getum við fundið þar?

 

4. Hvað er talið að dvergþang geti orðið gamalt?

5. Hvaða þörungur/þangtegund er talin vera útbreiddust hér við land?
6. Veldu þér einn af fuglunum sem er að finna í klettafjöru og finndu eftirfarandi upplýsingar um hann.  
Íslenska nafnið á honum
Latneska heitið á honum
Hvað hann er þungur
Stærð eggja hans
7. Farðu og skoðaðu Önnur dýr og athugaðu hvað eru mörg dýr sem teljast til skelja þar?
8. Hvernig er hægt að þekkja unga öðu frá kræklingi?
9. Hvað gerir bogkrabbinn þegar skel hans verður of lítil?
10. Hvaða kuðungi var safnað áður fyrr til að lita klæði purpurarauð?