LITLI KARFI

Sebastes viviparus

Litli karfi er fremur stuttur, hár og þunnvaxinn beinfiskur. Hann er hausstór með stór augu og er yfirmynntur, þ.e. neðri skoltur nær lengra fram en sá efri. Á vanga eru fimm broddar sem allir snúa aftur. Einn bakuggi nær frá haus aftur á stirtlu. Stuttur raufaruggi er undir stirtlunni. Eyruggar eru fremur stórir en kviðuggar litlir. Litli karfi er ljósrauður á baki og hliðum, en ljós á kviði. Ofan til á tálknalokunum er svartur blettur. Fullvaxinn er litli karfi oftast 20 til 30 cm langur.


Spila myndband

Litli karfi Við Ísland hefur litli karfi eingöngu fundist við suður- og vesturströndina og vestanvert Norðurland. Hann lifir nálægt botni, heldur sig einkum yfir grýttum botni á 100 til 400 metra dýpi en veiðist stundum mun grynnra, allt upp á 15 m dýpi. Litli karfi lifir í Norður-Atlantshafi.

Litli karfi Litli karfi lifir fyrst og fremst á sviflægum krabbadýrum, rauðátu og ljósátu. Yngstu fiskarnir lifa aðallega á rauðátu og þeir eldri á ljósátu.

Litli karfi gýtur lifandi afkvæmum. Getnaður fer fram síðsumars og eggin þroskast og klekjast út í kvið hrygnunnar. Hrygningin verður á vorin og verða seiðin fyrst sviflæg en leita botns í lok sumars.