• Skógarþröstur

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • Ungfugl (t.v.) og fullorðinn

    ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

  • ©Jóhann Óli Hilmarsson

Almennar upplýsingar

Hinn söngfagri fugl, skógarþröstur, er einkennisfugl íslenskra birkiskóga og jafnframt algengur í görðum í þéttbýli. Hann er meðalstór spörfugl, dökkmóbrúnn að ofan, hvítur eða ljósgulur að neðan. Bringa hans er alsett þéttum, dökkum langrákum, kviðurinn er minna rákóttur. Ljós, breið brúnarák og skeggrák, ásamt rauðbrúnum síðum og undirvængþökum, greina hann frá öðrum þröstum. Ungfugl síðsumars er ljósari með ljósa fjaðrajaðra að ofan.

Um leið og skógarþrösturinn kemur til landsins á vorin byrjar karlfuglinn að syngja og helga sér svæði. Hann er félagslyndur utan varptíma og fer þá um í flokkum. Hann hoppar oftast jafnfætis á jörðu niðri.


Fæða og fæðuhættir:
Bæði dýra- og jurtaæta, fuglarnir eta skordýr, áttfætlur, orma og bobba á sumrin og fæða ungana á þeim. Síðsumars leggjast þeir í berjamó og sækja síðan í reyniber og önnur ber í görðum. Fyrir vetrarfuglana er gott að leggja út epli, perur, fitu og kjötsag.


Fræðiheiti: Turdus iliacus

Kjörlendi og varpstöðvar

Verpur í alls konar skóglendi á láglendi, mesti þéttleikinn er í birkiskógi með ríkulegum undirgróðri, í görðum og ræktuðum skógi. Hreiðrið er karfa, ofin á undirstöðu úr leir, tágum og stönglum, staðsett í tré, gjarnan barrtré í þéttbýli, á jörðu niðri í kjarri, í skurðbökkum og á byggingum. Verpur oft tvisvar til þrisvar á sumri. Sést víða á fartíma, t.d. í fjörum og skógum.


Varp- og ungatímabil


Dvalartími á Íslandi

Útbreiðsla og ferðir

Skógarþröstur er að mestu farfugl. Skógarþrösturinn fer til Vestur-Evrópu á haustin, mest til Bretlands, Írlands, Frakklands og Pýreneaskaga. Nokkur þúsund þreyja hér þorrann og góuna í þéttbýli.

Varpstöðvar
Vetrarstöðvar
Litaskýringar

EGG

HREIÐUR

UNGAR