Áfram

20. öldin – kynning

Eftir 1900

Á fyrstu tveimur áratugum 20. aldar fjarlćgđust mörg framsćkin tónskáld smám saman hefđbundnar tóntegundir í tónsmíđum sínum. Öldin átti eftir ađ fóstra marga strauma og stefnur og víxlverkun er mikil. Nú taka flestir tónlistarmenn, af öllum tegundum, sér ţađ vald ađ velja úr ríkulegum brunni tónlistarhugmynda samtímans og fortíđarinnar. Öll mörk milli tegunda, stíla, iđnađar- og lćrđar tónlistar eru ađ verđa mjög ţokukennd.

Sögusíđurnar gefa, eins og á hinum tímabilunum, almenna mynd af ţróun tónlistar á ţessu tímaskeiđi. Undirsíđum er hins vegar ćtlađ ađ kasta ljósi á einstaka stefnur eđa strauma međ ađeins skýrari hćtti. Hlustunardćmin miđast ađ nokkru viđ ţessa framsetningu efnisins.

Tónskáld 20. aldar eru ekki bara mörg heldur dreifast nú skrifandi tónlistarmenn sem byggja á grunni vestrćnnar tónlistar um öll byggđ ból. Ţau fjögur tónskáld sem hér fá ađ fljóta međ gegna lykilhlutverkum og eru risar, hvert á sínu sviđi. Debussy markar upphaf nýrra tíma í tónlist, Stravinsky og Berg eru miklir tónsnillingar og risar á fyrri hluta aldarinnar og Varése er hér fulltrúi ţeirra sem skođa tónlist í sífellt víđari merkingu ţess orđs.

Hlustunardćmin eru mörg en ţjóna ţó ađeins sem örlítil kynning á öllu ţví mikla efni sem tónskáld settu fram á síđustu öld. Spurningum og svörum er ćtlađ ađ auđvelda nemendum ađ átta sig á inntakinu. Nemendur geta svo athugađ kunnáttu sína međ ţví ađ taka próf.

Ekki er hćgt ađ kynna nema brot ţeirra tónsmíđaađferđa sem hćst bar á 20. öldinni ađ ţessu sinni. Blúsinn er létt verkefni og í sterkum tengslum viđ tónlistarumhverfiđ í samfélaginu. Ţađ er ekki eins auđvelt ađ fanga hiđ draumkennda og tjá hughrif í verkefninu sem sćkir tónsmíđahugmyndir til impressjónismans. Reynt er í fáum skrefum ađ gefa grunn sem nýst getur til smíđa á efni sem ćtti ađ hljóma ólíkt öđru en jafnframt sýna forvitnilega möguleika. Ađ síđustu er svo fariđ nokkuđ nákvćmlega í gegnum tólftónatónsmíđ ţó ljóst sé ađ ţar rćđur persónulegt mat og tónlistarinnsći hvers og eins miklu um útkomuna.