Áfram

Endurreisn – kynning

1450 – 1600

Í umfjölluninni um endurreisn er reynt að gefa mynd af ýmsum þeim hugmyndum sem áhrif höfðu á listsköpun á þessu tímabili. Fjallað er lítillega um notkun mannsraddarinnar í tónlistinni og þróun sem tengist áherslu á túlkun texta.

Tónskáldin sem fjallað er um eru tvö, þeir Josquin Des Pres og Carlo Gesualdo. Annar dáður og elskaður í samtíma sínum en hinn aðalsborinn sakamaður á faraldsfæti.

Hlustunardæmi gefa hugmynd um hvernig tónlistin breyttist á tímabilinu og spurningum og svörum er ætlað að auðvelda nemendum að átta sig á inntakinu. Nemendur geta svo athugað kunnáttu sína með því að taka próf.

Tónsmíðar tímabilsins byggjast á því annars vegar að setja saman dans úr efniviði með rætur í tónlist miðalda sem fær annan blæ við það að setja efninu hrynrænni skorður og með tónbilum sem lítið voru notuð fyrr en á endureisnartímanum. Hins vegar er um að ræða vinnu með hljómaraðir sem notaðar voru sem grunnur að dönsum, passamezzo-raðirnar. Ofan á þær eru unnin lagræn tilbrigði.