PrentaPRENTA

Gjálp

Þann 30. september 1996 varð eldgos í Vatnajökli, á milli Bárðarbungu og Grímsvatna á um 7 km langri sprungu. Í fyrstu gaus undir 400–600 m þykkri íshellunni en 2. október braust gosstrókurinn upp úr jöklinum. Gosið stóð til 13. október. Mikil gjá myndaðist í jökulinn og hlaut hún nafnið Gjálp.

Bræðsluvatn frá eldstöðvunum rann undir jöklinum niður í Grímsvötn og safnaðist þar fyrir. Bræðsluvatnið lyfti smám saman íshellu Grímsvatna þar til 4. nóvember að ísstíflan þar brast. Þá hófst gríðarmikið jökulhlaup niður á Skeiðarársand. Hlaupið kom meðal annars fram í farvegum Skeiðarár og Sandgígjukvíslar og varð hámarksrennsli þess um 45 þúsund rúmmetrar á sekúndu, eða álíka og hundraðfalt rennsli Ölfusár.

Mikið tjón varð á mannvirkjum á Skeiðarársandi. Um 10 km sópuðust burt af þjóðveginum yfir sandinn, brúin yfir Sandgígjukvísl hvarf og lengsta brú landsins yfir Skeiðará styttist um heila 200 m. Þá rofnuðu rafmagnslína og ljósleiðari. Þrátt fyrir allt þetta má segja að mannvirkin hafi staðist þessa þolraun með prýði.

Smelltu til að fá stærri mynd
Hæð: 2000 m
Tegund: Eldhryggur
Síðasta gos: 1996