Emil horfði bergnuminn ofan í kassann á þetta litla dýr sem lá þar. Hvolpurinn var svo fallegur að Emil fékk kökk í hálsinn og langaði mest til að taka hann í fangið og kjassa hann. Konan greip með annarri hendinni utan um hann og tók hann upp. Hvolpurinn opnaði augun syfjulega og leit á þau.

Guðmundur Ólafsson. 2001.Emil og Skundi. Reykjavík, Vaka-Helgafell.