RÆKJA
Pandalus borealis
Rækjan er aflöng og flöt á hliðum, aftari hluti hennar er hali sem sveigist niður á við en fram úr henni gengur trjóna og fálmarar. Fullvaxin er hún 85 til 150 mm löng, ef trjónu og fálmurum er sleppt. Rækjan hefur um sig skel úr kítíni og kalki og er rauð eða ljósrauð á litinn.
Fremri helmingur dýrsins er hulinn einum samfelldum skildi en aftari helmingurinn, halinn, er liðskiptur, gerður úr sex liðum. Ofan á þriðja halalið er lítill hryggur og broddur. Aftast er sporður, gerður úr fimm blöðkum. Fjórir fálmarar ganga fram úr dýrinu. Augun standa á stuttum stilkum og milli þeirra gengur fram tennt trjóna. Neðan á bolnum eru fimm mjóslegin fótapör og eru tangir fremst á fyrstu tveimur pörunum. Neðan á hverjum lið á hala eru tveir fætur sem enda í sundblöðkum. Þegar rækjan er á botni gengur hún á fótum frambolsins og færist áfram en á sundi slær hún halanum undir sig með snöggum hreyfingum og skýst þá aftur á bak.
Spila myndband
Rækja er kaldsjávartegund sem lifir í Norður-Atlantshafi og Norður-Íshafi. Hún finnst í Barentshafi við Novaja Zemlja og norðan frá Svalbarða, suður með ströndum Noregs til Skagerak. Hún er við Ísland og Grænland. Meðfram austurströnd Norður-Ameríku finnst hún frá Labrador í Kanada suður á móts við Mainefylki í Bandaríkjunum.
Hér við land er algengast að rækjan sé á 50 til 700 m dýpi. Hún heldur sig mest á leirbotni en finnst þó stundum einnig á hörðum botni. Veiðar á rækju fara fram allt í kringum land nema við suðurströndina.