Í heiminum eru um 9600 tegundir fugla. Á Íslandi verpa um 70 tegundir árvisst. Þó tegundirnar séu ekki sérlega margar hérlendis er fjöldi einstaklinga oft mjög mikill. Við getum því sagt að á Íslandi sé mikið fuglalíf.
Það er skrýtið að hugsa um það, en einu
sinni voru engir fuglar til. Þeir komu ekki
á sjónarsviðið fyrr en nokkuð var liðið
á sögu lífríkis á jörðunni.
Allir vita hvað er fugl - eða hvað?
Kannski ættum við í vandræðum með að
útskýra það fyrir einhverjum
sem aldrei hefði litið þá augum!
Á jörðinni er náttúran margbreytileg.
Látið aðeins hugann reika!
Víðast má finna fugla.
Ákveðin tegund ríkir hér og önnur þar.
Líkt og aðrar lífverur eiga fuglarnir sín
æviskeið. Þeir skríða úr eggi, vaxa,
dafna, fjölga sér og deyja.
Fuglar eru ólíkir í háttum. Sumir halda
hópinn, aðrir eru einfarar, sumir veiða
dýr, aðrir tína fræ, sumir fljúga langt
aðrir fara ekki neitt. Þannig mætti
halda áfram..
Það er gaman að fylgjast með fuglum.
Fuglaskoðun er tómstundaiðja fjölda fólks.
Margt má læra með því að
fylgjast með fuglum.