Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        22 - 24 cm 
Þyngd:        120 g
Vænghaf:   50  -  57 cm
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Fremur lítill fjörufugl, skrautlegur og kvikur.

Tildran dregur nafn sitt á mörgum tungumálum af því háttalagi að velta við steinum og þangi í fjörunni í leit að æti.

Hún er félagslynd, en er sjaldan í stærri hópum en frá nokkrum tugum fugla upp í fáein hundruð.

Gefur frá sér hvellt og klingjandi skvaldur.

Fæða: Skordýr, krabbadýr, kræklingur og sniglar

Tildra   -   Arenaria interpres

Fjöldi eggja:   4    
Liggur á:       22 - 23  daga
Ungatími:      19 - 21 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil

Egg fuglsins hafa ekki fundist á Íslandi

Tildran heldur sig helst í klettafjörum og á opnum ströndum með miklum þanghrönnum, einnig á leirum. Á vorin sést hún oft inn til landsins.

Varpfuglar á Grænlandi og NA-Kanada hafa hér viðdvöl vor og haust á leið sinni milli varpstöðvanna og vetrarstöðva í V-Evrópu. Nokkur hundruð tildrur dvelja allan veturinn í fjörum SV-lands og slæðingur af geldfugli er hér allt sumarið.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Vor og haust
Varp- og vetrarstöðvar
Útbreiðslukort