
Heiðlóa, sem jafnan er nefnd lóa, er einkennisfugl íslensks þurrlendis. Hún er meðalstór vaðfugl, töluvert minni en spói, allþéttvaxin og hálsstutt. Vængirnir eru fremur langir.
Biðilsflug með hægum, djúpum vængjatökum og söng er einkennandi.
Sé reynt að nálgast hreiður eða unga lóunnar þykist hún vera vængbrotin til að draga að sér athyglina og lokka óvininn burt.
Hún er félagslynd utan varptíma.
Fæða:
Skordýr, ormar, sniglar og ber.
Fjöldi eggja:
4
Liggur á:
30 daga
Ungatími:
25 - 33 dagar