Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        30 - 38 cm 
Þyngd:        450 g
Vænghaf:   76  -  89 cm
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Meðalstór, rennilegur og grannvaxinn sjófugl.

Skrofur eru oftast í hópum. Þær koma aðeins í vörpin að næturlagi en safnast í stóra hópa nærri þeim síðdegis. Skrofan flýgur lágt yfir haffleti og veltir sér á fluginu, svo til að sjá eru hóparnir annaðhvort svartir eða hvítir. Á sundi minnir hún á svartfugl en er léttsyndari. Tekur æti bæði fljúgandi og á sundi. Eltir sjaldan skip.

Þögul, nema á varpstöðvum heyrast ýmiss konar óp, skrækir og vein.

Fæða:

Skrofa   -   Puffinus puffinus

Fjöldi eggja:   1    
Liggur á:       52  daga
Ungatími:      70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Úthafsfugl, sem kemur ekki á land nema til að verpa. Verpur í þéttum byggðum á grasi vöxnum eyjum og höfðum. Gerir sér hreiður í holu sem hún grefur í svörð, oft innan um lunda.

Sést víða við S- og SV-land frá vori fram á haust. Vetrarstöðvar eru við strendur S-Ameríku allt suður til Argentínu.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort