Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        25 - 26 cm 
Þyngd:        100 g
Vænghaf:   39  -  42 cm
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Gráþrösturinn er líkur skógarþresti en töluvert stærri og stéllengri.

Gráþröstur grípur til renniflugs með aðfelldum vængjum milli þess sem hann blakar þeim. Er var um sig og styggur. Fuglarnir sjást stakir eða í hópum, bæði stórum og litlum.

Gefur frá sér hrjúft, hvellt og endurtekið ,,tsjakk”. Söngurinn er hröð runa fremur veikra, ískrandi hljóða.

Fæða:

Gráþröstur   -   Turdus pilaris

Fjöldi eggja:   5 - 6    
Liggur á:       10 - 13  daga
Ungatími:      12 - 15 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Gerir sér veglegt hreiður í trjám. Heldur til í skóglendi, görðum, við bæi og í fjörum.

Er hér algengur haust- og vetrargestur. Hefur orpið nokkrum sinnum frá 1950, bæði norðanlands og sunnan. Varpheimkynni gráþrastar er á breiðu belti í Evrópu og Asíu.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Varpstöðvar
Haust- og vetrarstöðvar
Útbreiðslukort