
Sjósvala er ívið stærri en stormsvala, en annars lík henni í útliti og lífsháttum.
Hegðar sér svipað og stormsvala, en flugið er reikulla. Sjósvala eltir sjaldan skip. Lendir frekar í hrakningum í stórviðrum á haustin en stormsvala.
Hljóð sjósvölu eru margvísleg á varpstöðvum. Á flugi gefa fuglarnir frá sér hljóð sem mynna á sérkennilegan hlátur. Þeir kurra í holum og er kurrið rofið af hærri hljóðum ásamt fyrrgreindum hlátri.
Fæða:
Fjöldi eggja:
1
Liggur á:
41 - 42 daga
Ungatími:
63 - 70 dagar