Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        58 - 66 cm 
Þyngd:        1500 g
Vænghaf:   82  -  97 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Þessi stóra systir toppandarinnar er stærsta íslenska ferskvatnsöndin. Einfaldur, stríður hnakkatoppur, hvít kverk og skörp skil á hálsi milli brúna og gráa litarins greina hana frá toppandarkollu, auk stærðarinnar, blágrárri búks og rauðleitara höfuðs. .

Gulönd virðist fremur löng og flöt á flugi, enda heldur hún höfði, hálsi og bol lárétt. Háttum svipar til toppandar.

Er oftast í litlum hópum. Er venjulega þögul nema í tilhugalífinu, gargar þá rámt.

Fæða:

Gulönd   -   Mergus merganser

Fjöldi eggja:   8 - 11    
Liggur á:       30 - 32  daga
Ungatími:      60 - 70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Kjörlendi er við stöðuvötn og straumvötn þar sem bráð er að finna. Hreiðrið er í gjótu eða skúta í klettum eða bökkum, einnig í runnum og lyngi eða jafnvel í gömlum húsum og hrafnshreiðrum.

Er á veturna aðallega á auðu ferskvatni en einnig á sjó, sérstaklega í frosthörkum þegar ár leggur. Stærsti vetrarhópurinn er á Mývatni.

Steggir fara e.t.v. af landi brott til að fella fjaðrir. Heimkynni eru á breiðu belti um allt norðurhvel jarðar.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort