Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        65 - 78 cm 
Þyngd:        2500 g
Vænghaf:   130  -  165 cm
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Blesgæs, sem er dekkst gráu gæsanna, er umferðarfugl hér. Hún er grábrún, með ljósum rákum að ofan og dökkum rákum á síðum. Ungfugl er án dökku rákanna á kviði og blesunnar.

Blesgæs hegðar sér svipað og aðrar gráar gæsir en er sneggri í uppflugi, sýnist grennri og er liprari á flugi, hópamyndun er losaralegri. Er lipur sundfugl eins og aðrar gæsir og ávallt félagslynd.

Röddin er hærra stemmd, meira syngjandi og þvaðrandi en hjá öðrum gæsum og lætur blesgæsin meira í sér heyra á flugi.

Fæða: Grænir plöntuhlutar og gras

Blesgæs   -   Anser albifrons

Fjöldi eggja:   5 - 6    
Liggur á:       27 - 28  daga
Ungatími:      40 - 43 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil

Egg fuglsins hafa ekki fundist á Íslandi

Hérlendis velur blesgæsin sér helst ýmiss konar votlendi og úthaga en er fremur í ræktuðu landi, t.d. túnum og ökrum, í frosti og jarðbönnum.

Undirtegundin A.a. flavirostris sem verpur á V-Grænlandi og hefur vetursetu á Írlandi og Skotlandi fer um Ísland vor og haust. Hún hefur viðdvöl á láglendi frá Snæfellsnesi í vestri austur í Skaftárhrepp, sést þó stundum annars staðar. Henni hefur fjölgað á síðustu árum eftir lægð um 1980.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Vor og haust
Varp- og vetrarstöðvar
Útbreiðslukort