Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        31 - 34 cm 
Þyngd:        300 g
Vænghaf:   63  -  70 cm
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Bjargdúfa er gráblá, með gljáandi grænar og purpuralitar hálshliðar. Hún er með hvítan yfirgump, dökka rák á jaðri stéls og 2 svartar vængrákir.

Húsdúfan er afkomandi bjargdúfunnar. Hún er til í mörgum litum, t.d. hvít, alsvört og brún, og til eru ýmis ræktuð afbrigði. Dökkar bjargdúfur eru líka til.

Dúfur svífa oft með vængina uppsveigða.

Gefa frá sér malandi kurr.

Fæða:

Bjargdúfa   -   Columba livia

Fjöldi eggja:   2 - 2    
Liggur á:       16 - 19  daga
Ungatími:      35 - 35 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Húsdúfa lifir í bæjum og þéttbýli og verpur á húsum, hreiðrið er grófgert, úr sprekum og gróðri. Bjargdúfa verpur í klettaskútum. Húsdúfa verpur á helstu þéttbýlisstöðum landsins og dreift á sveitabæjum. Töluvert hefur verið herjað á hana á síðustu árum og hefur henni fækkað mikið í Reykjavík. Dúfur sem bera öll einkenni bjargdúfna verpa í klettum á nokkrum stöðum á Austurlandi, frá Berufirði norður í Norðfjörð. Uppruni þeirra er óviss, þær gætu verið afkomendur húsdúfna sem hafa lagst út og/eða bjargdúfna sem hafa flækst hingað, en þær verpa m.a. í Færeyjum og á Skotlandi.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort