
Hrossagaukur (einnig kallaður mýrispýta eða mýrisnípa) er algengur meðalstór vaðfugl sem fer gjarnan huldu höfði.
Fluglagið er rykkjótt og sérkennilegt. Á vorin flýgur hrossagaukur hringflug yfir óðali sínu og hneggjar án afláts. Erfitt er að koma auga á hann á jörðu niðri, því hann er var um sig og felugjarn. Þegar hann er fældur upp flýgur hann snögglega upp með skrækjum og hverfur á braut með hröðum vængjatökum eða steypir sér snöggt til jarðar.
Fremur ófélagslyndur fugl.
Fæða:
Ormar, sniglar, krabbadýr og skordýr.
Fjöldi eggja:
4
Liggur á:
18 - 20 daga
Ungatími:
19 - 20 dagar