Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        51 - 66 cm 
Þyngd:        800 g
Vænghaf:   80  -  95 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Grannvaxin og hálslöng votlendisönd og oftast auðgreind á löguninni.

Flug grafandar er kraftmikið með tíðum vængjatökum, vængir grannir og oddhvassir. Hún flýtur vel á vatni og á auðvelt með gang.

Sést venjulega í pörum eða litlum hópum, oft með öðrum buslöndum. Er fremur stygg, hegðar sér líkar rauðhöfða en stokkönd.

Kollurnar gefa frá sér djúpt garg en yfirleitt er fuglinn þögull.

Fæða:

Grafönd   -   Anas acuta

Fjöldi eggja:   7 - 9    
Liggur á:       22 - 24  daga
Ungatími:      40 - 50 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Kjörlendi grafandar er blautar flæðimýrar, fen og lífrík vötn og tjarnir með aðliggjandi mýrum. Hún verpur í móum eða á þúfum, hreiðrið er venjulega opnara en hjá öðrum buslöndum en annars svipað að gerð.
br> Verpur dreift um land allt, en er algengust á N-landi og Úthéraði. Vetrarstöðvar eru víða um vestanverða Evrópu. Stöku fuglar sjást flesta vetur á SV-landi. Heimkynni eru á mjög breiðu belti á norðurhveli jarðar en þó ekki á heimskautasvæðunum.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort