
Einkennismáfur margra strandsvæða, sérstaklega á veturna. Stór fugl, svipaður svartbaki á vöxt og stærð.
Hvítmáfur er stór og þungur og svipar til annarra stórra máfa. Hann er mjög félagslyndur. Hann ristir dýpra á sundi en bjartmáfur. Er með kraftmeiri gogg, flatara enni og vængir ná ekki eins langt aftur fyrir stél á sitjandi fugli og hjá bjartmáfi, vængir eru einnig hlutfallslega breiðari.
Fæða:
Fiskur, fiskúrgangur, hryggleysingjar og hræ.
Fjöldi eggja:
2 - 3
Liggur á:
27 - 28 daga
Ungatími:
49 - 49 dagar