Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        44 - 52 cm 
Þyngd:        700 g
Vænghaf:   70  -  84 cm
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Þessi sérkennilega önd, með sinn mikla gogg, er sjaldgæfasta öndin sem verpur reglulega hér á landi. Hún er minni en stokkönd, hálsstutt og fremur kubbsleg.

Vængir eru aftarlega á bol skeiðandar og hún er þung á sér á flugi. Hún er djúpsynd og veit goggurinn niður á sundi. Hún síar æti úr leðju með framrétt höfuð en hálfkafar einnig. Fuglarnir eru venjulega stakir, í pörum eða litlum hópum. Er fremur stygg.

Fæða: Smádýr í vötnum og fræ.

Skeiðönd   -   Anas clypeata

Fjöldi eggja:   9 - 11    
Liggur á:       22 - 23  daga
Ungatími:      40 - 45 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Kjörlendi skeiðandar er lífríkt votlendi og seftjarnir, venjulega nærri ströndinni. Hreiðrið er í háum gróðri, oftast nærri vatni, gert úr grasi og stör og fóðrað með dúni.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort