Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        34 - 38 cm 
Þyngd:        350 g
Vænghaf:   58  -  64 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Urtönd er minnsta öndin sem verpur hér og raunar minnsta önd Evrópu.

Hún er afar snör í snúningum og stygg. Þessi litli, kviki og hraðfleygi fugl er hálfgerður náttfugl og mest á ferli í ljósaskiptunum og á nóttunni. Oft sjást urtendur fljúga lágt í þéttum, litlum hópi og svipar þá til vaðfugla. Urtöndin hefur sig bratt til flugs, er lítil og þéttvaxin með hnöttótt höfuð, stuttan háls og mjóa vængi.

Hún er félagslynd utan varptíma en afar stygg og felugjörn.

Fæða: Sefdýr, plöntuhlutar og fræ.

Urtönd   -   Anas crecca

Fjöldi eggja:   8 - 11    
Liggur á:       21 - 23  daga
Ungatími:      25 - 30 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Kjörlendi urtandar er á sumrin vot svæði á láglendi, t.d. grunnar tjarnir, skurðir, kílar, lygnar lindár, blautar mýrar og flóar.

Hreiðrið er svipað og hjá öðrum buslöndum, venjulega vel falið í gróðri. Heldur sig á veturna bæði á grunnum vogum eða víkum og á íslausu ferskvatni og jarðhitasvæðum.

Láglendisfugl en finnst einnig í gróðurvinjum á hálendinu.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort