Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        24 - 25 cm 
Þyngd:        100 g
Vænghaf:   34  -  39 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Svartþröstur er svipaður gráþresti að stærð, og að lit ekki ósvipaður stara. Þekkist best frá stara á lengra stéli, jöfnum, svörtum lit án díla (karlfugl) og lengra stéli, auk þess á hátterninu, sem svipar til hegðunar annarra þrasta.

Er venjulega felugjarn, nema syngjandi karlfugl á vorin, sem hreykir sér í trjátoppum.

Svartþrestir sjást stakir eða í smáhópum.

Fæða: Ormar, skordýr og ber.

Svartþröstur   -   Turdus merula

Fjöldi eggja:   3 - 5    
Liggur á:       13 - 15  daga
Ungatími:      13 - 14 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Heldur sig hér á landi á svipuðum slóðum og gráþröstur.

Er haust- og vetrargestur, fyrsta staðfesta varpið var í Reykjavík 1969.

Frá árinu 1991 hafa svartþrestir orpið reglulega í Reykjavík og nú hefur lítill en vaxandi varpstofn náð þar fótfestu. Þeir verpa nú orðið á Innnesjum öllum, frá Hafnarfirði og uppí Kollafjörð. Varpfuglarnir eru að öllum líkindum staðfuglar.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Varpstöðvar
Haust- og vetrarstöðvar
Útbreiðslukort