Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        38 - 45 cm 
Þyngd:        600 g
Vænghaf:   63  -  69 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Straumöndin er einkennandi á straumhörðum lindám og við brimasamar strendur. Hún er smávaxin, hálsstutt, dökk kafönd með hátt enni og fleyglaga stél. Steggurinn er afar skrautlegur.

Straumönd flýgur hratt með hröðum vængjaslögum og veltum lágt yfir vatnsfleti. Hún flýgur sjaldan yfir land en fylgir ám og þræðir þá hverja bugðu árinnar og fer jafnvel undir brýr.

Straumöndin er mjög fimur sundfugl og getur synt bæði í hörðum straumi og brimi og kafað eftir æti í hvítfyssandi iðuna. Hún sperrir oft stélið á sundi og rykkir til höfðinu.

Hún er spök og félagslynd, er utan varptíma oftast í litlum þéttum hópum.

Fæða:

Straumönd   -   Histrionicus histrionicu

Fjöldi eggja:   4 - 8    
Liggur á:       27 - 29  daga
Ungatími:      63 - 70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Heldur sig á sumrin við straumharðar lindár og útföll úr stöðuvötnum, þar sem nóg er af bitmýi.

Hreiðrið er á árbökkum eða í hólmum, vel falið milli steina eða í gróðri. Dvelur utan varptíma við brimasamar klettastrendur (,,brimdúfa").

Kollan sér um útungun og uppeldi unga meðan steggurinn fer til sjávar til að fella flugfjaðrir.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort