
Toppskarfur er nokkru minni og grennri en dílaskarfur. Hálsinn er styttri og grennri og höfuðið minna, en annars getur verið erfitt að greina þessa fugla sundur eftir stærð og vexti nema sjá þá saman. Höfuð toppskarfs er hnöttóttara, enni brattara og goggur áberandi grennri en ádílaskarfi.
Er djúpsyndur og ber höfuðið hátt á sundi eins og dílaskarfur. Eftir köfun þarf toppskarfur að þurrka vængina og situr þá oft og blakar þeim, ,,messar" eins og dílaskarfur, en breiðir ekki jafn mikið úr vængjunum. Hann er fremur klaufalegur þegar hann hefur sig á loft, flýgur með hraðari vængjatökum en dílaskarfur og teygir hálsinn og gogginn ekki upp eins og hann, flýgur fremur lágt. Er venjulega félagslyndur.
Fæða:
Fiskur
Fjöldi eggja:
1 - 6
Liggur á:
30 - 31 daga
Ungatími:
53 dagar