
Rauðhöfðaönd er meðalstór önd, nokkru minni en stokkönd, með hnöttótt höfuð, stuttan háls, lítinn gogg, fleyglaga stél og langa, mjóa vængi.
Rauðhöfðaönd flýgur hratt með örum vængjatökum. Hún virðist fremur framþung og er oft með inndreginn háls á sundi. Sést oft á beit á landi.
Hún er félagslynd utan varpstöðva og mynda steggir í felli oft stóra hópa.
Fæða:
Vatnaplöntur og gras.
Fjöldi eggja:
8 - 10
Liggur á:
24 - 25 daga
Ungatími:
40 - 45 dagar