Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        46 - 56 cm 
Þyngd:        750 g
Vænghaf:   85  -  95 cm
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Gargönd er sjaldgæf önd. Hún er ívið minni og grennri en stokkönd en annars eru kollur þeirra mjög líkar.

Atferli er svipað og hjá stokkönd. Gargöndin er hraðfleyg og einnig góður sundfugl, fremur felugjörn og lætur lítið á sér bera. Er í pörum eða smáhópum, venjulega innan um aðrar buslendur.

Fæða: Vatnaplöntur, fræ og smádýr.

Gargönd   -   Anas strepera

Fjöldi eggja:   8 - 12    
Liggur á:       24 - 26  daga
Ungatími:      45 - 50 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Heldur sig einkum í lífríkum starmýrum og við grunnar tjarnir og polla á láglendi. Verpur nærri vatni í þéttum gróðri, undir þúfum, runnum og háu grasi.

Hreiðrið er dæld, fóðruð með sinu og dúni.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort