Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        31 - 38 cm 
Þyngd:        450 g
Vænghaf:   59  -  65 cm
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Eini goðinn sem verpur á Íslandi. Minnir á smávaxna önd en er þó líkari brúsum í háttum og útliti; auðþekktur á þríhyrndu höfði, mjóum hálsi sem hann teygir oft, og stuttu stél.
Flórgoði á erfitt með að hefja sig til flugs og flýgur sjaldan en þegar hann er kominn á loft á hann auðvelt með flug, fæturnir skaga aftur fyrir stélið og höfðinu er haldið lágt.

Hann er mikill sundfugl og góður kafari en þungur til gangs.

Sefdans flórgoðans í tilhugalífinu er mikið sjónarspil. Hann ber ungana gjarnan á bakinu og fæðir þá fyrstu vikurnar.

Félagslyndur, en helgar sér óðal í vörpunum.

Fæða: Hornsíli, vatnaskordýr og önnur vatnadýr.

Flórgoði   -   Podiceps auritus

Fjöldi eggja:   3 - 5    
Liggur á:       22 - 25  daga
Ungatími:      55 - 60 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur við vötn og tjarnir með silungi, frá sjávarmáli upp í 600 m hæð. Hreiðrið er stór en grunn laut á vatnsbakka eða í litlum hólma og myndast vel troðin slóð milli hreiðurs og vatns. Dvelur á veturna við strendur og geldfugl er aðallega á sjó á sumrin.

Staðfuglar hafa vetursetu við ströndina en farfuglar eru við Bretlandseyjar og V-Evrópu. Ísland er eini varpstaður þessa vesturheimsfugls í Evrópu en hann er algengur á meginlandi N-Ameríku og á Grænlandi.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort