Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        34 - 36 cm 
Þyngd:        400 g
Vænghaf:   54  -  60 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Rjúpa eða fjallrjúpa er eini hænsnafuglinn sem lifir villtur á Íslandi. Hún er hnellin og vængirnir stuttir og breiðir. Hún fellir bolfjaðrir þrisvar á ári en flugfjaðrir aðeins einu sinni.

Rjúpan flýgur hratt og lágt með hröðum vængjatökum, lætur sig svífa með sveigða vængi. Á auðvelt með gang, hleypur oft og klifrar í trjám.

Karrar eru áberandi á vorin, tylla sér á háa staði og eru þá auðveld bráð fyrir fálka, alhvítir í dökku umhverfi. Ungar verða fleygir á 10 dögum, löngu áður en þeir ná fullri stærð.

Rjúpan er að jafnaði félagslynd.

Fæða: : Jurtafæða, svo sem ber, reklar og brum af víði og birki, laufblöð.

Rjúpa   -   Lagopus mutus

Fjöldi eggja:   10 - 12    
Liggur á:       21 - 23  daga
Ungatími:      70 - 84 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur á lyngheiðum, í móum, kjarri, skóglendi og grónum hraunum frá fjöru til fjalls. Hreiðrið er fóðruð skál, vel falin í runnum eða lyngi.

Rjúpur halda til fjalla á haustin en þegar jarðbönn hamla beit leita þær niður á láglendi og halda þá til í hlíðum, kjarri og jafnvel í byggð, kvenfuglar og ungfuglar flakka meira, karrarnir halda sig stundum í varplöndunum árið um kring.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort