Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        37 - 39 cm 
Þyngd:        320 g
Vænghaf:   95  -  110 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Brandugla er eina uglan sem verpur að staðaldri hér á landi.

Flug branduglu er nokkuð rykkjótt og vængjatökin silaleg en þó er hún fimur flugfugl og getur verið snögg. Hún svífur oft með vængina lítið eitt fram- og uppsveigða.

Hún er einfari sem sést helst í ljósaskiptunum.

Er venjulega þögul en á varpstöðvum heyrist stundum hátt væl eða endurtekið, djúpt stef.

Fæða: Hagamýs og smáfuglar.

Brandugla   -   Asio flammeus

Fjöldi eggja:   4 - 8    
Liggur á:       24 - 29  daga
Ungatími:      28 - 35 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í lyngmóum, kjarri eða graslendi, oft þar sem blautt er. Hreiðrið er oftast falið í lyngi eða runna. Ungar klekjast ekki samtímis og geta verið mjög misstórir.

Heldur sig á veturna í skóglendi og görðum þar sem hagamýs er að finna.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort