
Stærsti og sjaldgæfasti ránfugl landsins, oft nefndur konungur fuglanna. Auðgreindur á stærð og lögun og ferhyrndum vængjunum með ystu handflugfjaðrir vel aðskildar (fingraðar).
Svífur gjarnan en er þunglamalegur í flugtaki. Oft má sjá úr mikilli fjarlægð hvar örninn svífur á þöndum vængjum yfir landi eða hafi og leitar sér að bráð, eða hvar hann situr langtímum saman kyrr á sama útsýnisstaðnum.
Venjulega er hann styggur og friðsamur en getur verið ágengur við hreiður.
Ernir eru oftast stakir, í pörum eða smáhópum.
Fæða:
Fiskur og fuglar.
Fjöldi eggja:
1 - 3
Liggur á:
35 - 40 daga
Ungatími:
70 - 77 dagar