
Algengasti íslenski ránfuglinn, líkur fálka en mun minni.
Smyrillinn er lipur og harðfylginn veiðifugl sem flýgur hratt yfir móa og grundir og þreytir oft bráð sína með því að elta hana. Vængjatökin eru hröð og flugið létt, hann svífur sjaldan og hnitar lítið.
Ýmist sjást fuglarnir stakir eða í pörum.
Fæða:
Smærri fuglar, einnig hagamýs.
Fjöldi eggja:
3 - 5
Liggur á:
28 - 32 daga
Ungatími:
25 - 32 dagar