
Fálki eða valur er stór og tígulegur ránfugl, með langa, breiða, odddregna vængi og stél, stærsti fugl fálkaættarinnar og var konungsgersemi fyrr á öldum og um tíma í skjaldarmerki Íslendinga.
Fálkinn flýgur með hröðum, kraftmiklum vængjatökum, grípur oft til renniflugs, er hraðfleygur og mjög fimur á flugi.
Fálkinn gefur frá sér hvellt væl á varpstöðvum en gargar reiðilega þegar hann er í árásarhug, er þó oftast þögull.
Fæða:
Aðallega rjúpa, einnig aðrir fuglar og jafnvel hagamýs.
Fjöldi eggja:
3 - 5
Liggur á:
35 daga
Ungatími:
49 dagar