Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        38 - 41 cm 
Þyngd:        1000 g
Vænghaf:   64  -  70 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Algengur og fremur stór svartfugl sem líkist mjög stuttnefju. Svipar í mörgu til álku og stuttnefju. Höfuðlag er þó annað, langvía er auk þess hálslengri og stélstyttri en álka.

Hún flýgur með kýttan háls. Á erfitt um gang, situr á ristinni.

Auðgreindust frá stuttnefju á kámugum síðum og því að engin hvít rák er á gogghliðum.

Er afar félagslynd.

Fæða: Fiskur, smokkfiskur.

Langvía   -   Uria aalge

Fjöldi eggja:   1    
Liggur á:       32 - 33  daga
Ungatími:      49 - 70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í stórum byggðum í fuglabjörgum eða ofan á stöpum og klettaeyjum. Er annars á sjó, bæði á grunn- og djúpsævi. Verpur á berar syllur, hreiðurgerð er engin. Er oft í stórum bælum og breiðum.

Ungar yfirgefa byggðina snemma eins og hjá álku.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort