
Fremur stór svartfugl sem svipar mjög til langvíu.
Fluglag og hegðun eru í grundvallaratriðum eins og hjá langvíu. Stuttnefja greinist frá langvíu á hvítum síðum, styttri og þykkari goggi með hvítri goggrönd, brattara enni og kantaðri kolli og á veturna á svörtum vöngum. Höfuðlag er annað en á álku, auk þess er stuttnefja hálslengri og stélstyttri.
Hún flýgur með kýttan háls og er fimur kafari.
Er afar félagslynd.
Fæða:
Fiskur, smokkfiskur, sviflæg krabbadýr.
Fjöldi eggja:
1
Liggur á:
30 - 35 daga
Ungatími:
49 - 70 dagar