
Eini svartfuglinn sem er svartur á kviði. Vængir teistunnar eru fremur stuttir og breiðir, hún flýgur oftast lágt yfir haffleti með hröðum vængjatökum og eru vængreitir þá áberandi.
Hegðun svipar til langvíu en teista er hreyfanlegri á landi.
Teistur sjást venjulega stakar eða í litlum hópum.
Fæða:
: Fiskur, aðallega sprettfiskur og sandsíli, krabbadýr.
Fjöldi eggja:
2
Liggur á:
29 - 30 daga
Ungatími:
40 dagar