
Lundi er einn af minni svartfuglunum og jafnframt sá algengasti. Hann er fremur höfuðstór og kubbslegur.
Lundinn flýgur beint með hröðum vængjatökum, venjulega lágt yfir haffleti. Stendur uppréttur og á auðvelt með gang. Samanreknari en hinir stærri svartfuglar, höfuðlag er annað og engar vængrákir.
Afar félagslyndur. Yfirleitt þögull en á varpstöðvunum heyrist kurrandi hljóð, bæði úr holum og frá sitjandi fuglum.
Á vefnum Fjaran og hafið er myndband af lunda. Þar sést hann synda í kafi.
Fæða:
Fiskur (síli, loðna, seiði), áta, smokkfiskur.
Fjöldi eggja:
1
Liggur á:
39 - 42 daga
Ungatími:
35 - 56 dagar