Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        37 - 39 cm 
Þyngd:        600 g
Vænghaf:   63  -  68 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Miðlungsstór svartfugl. Álka líkist langvíu og stuttnefju en er hálsstyttri og með hærri gogg.

Álka flýgur hratt og beint með teygðan háls, lágt yfir haffleti. Er létt á sundi og sperrir þá oft stél og jafnvel gogg. Góður kafari eins og aðrir svartfuglar og notar vængina jafnt sem fæturna við köfun.

Á erfitt um gang, situr á ristinni og heldur jafnvægi með stélinu. Er félagslynd.

Fæða: Fiskur og krabbadýr.

Álka   -   Alca torda

Fjöldi eggja:   1    
Liggur á:       35  daga
Ungatími:      49 - 70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Sjófugl, sem heldur sig bæði á grunnsævi og dýpra.

Verpur í byggðum við sjó, björgum eða grýttum urðum. Verpur oftast í sprungum eða undir steinum, einnig á berar syllur.

Ungarnir yfirgefa vörpin aðeins 2-3 vikna gamlir, löngu áður en þeir verða fleygir, og elta foreldrana á haf út.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort