
Stór, ljós og rennilegur sjófugl. Súlan er oft nefnd drottning Atlantshafsins vegna þess hve tíguleg hún er.
Er venjulega félagslynd og flýgur oft í litlum hópum lágt yfir haffleti. Flugið er kraftmikið með djúpum vængjatökum, brotið upp af svifflugi með aftursveigðum vængjum.
Súlukast er það kallað þegar súlan steypir sér eftir æti með aðfelldum vængjum, stundum úr allt að 40 m hæð. Er fremur létt á sundi.
Fæða:
Fiskur.
Fjöldi eggja:
1
Liggur á:
44 daga
Ungatími:
90 dagar