Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        45 - 50 cm 
Þyngd:        800 g
Vænghaf:   102  -  112 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Stór sjófugl sem minnir á máf, þéttvaxinn og hálsdigur með langa og mjóa vængi.

Auðgreindur frá máfum á einkennandi fluglagi, tekur fáein vængjatök og lætur sig svo svífa á stífum vængjunum. Léttur á sundi en á oft erfitt með að hefja sig á loft, sérstaklega í logni. Er þungur til gangs.

Leitar sér ætis bæði á flugi og syndandi, gjarnan kringum fiskiskip, í höfnum og við fiskvinnslustöðvar.

Á vefnum Fjaran og hafið er myndband af fýl.

Fæða: Fiskur, krabbadýr, úrgangur frá fiskiskipum.

Fýll   -   Fulmarus glacialis

Fjöldi eggja:   1    
Liggur á:       52 - 53  daga
Ungatími:      49 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Úthafsfugl, sem verpur í byggðum í klettum og björgum við sjó eða inn til landsins, stundum ofan á klettaeyjum eða dröngum.

Hreiðrið er grunn dæld, oft fóðrað með steinvölum eða þurrum gróðri, og er því valinn staður á syllu, í skúta eða grasbrekku.

Fuglinn verður seint kynþroska.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort