Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        80 - 100 cm 
Þyngd:        3000 g
Vænghaf:   130  -  160 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Stór, dökkur og hálslangur sjófugl.

Flýgur nokkuð hratt og er háfleygari en toppskarfur. Torvelt er að greina skarfana að á færi og er nánar fjallað um muninn á þeim í umfjöllun um toppskarf. Dílaskarfur teygir hálsinn fram á flugi og veit höfuðið lítið eitt upp á við. Þegar hann syndir eða situr veit goggurinn upp.

Situr oft með þanda vængi eftir ætisleit og blakar þeim í sífellu til að þurrka þá, „messar“.

Er styggur og var um sig á varpstöðvum. Félagslyndur.

Fæða: Fiskur.

Dílaskarfur   -   Phalacrocorax carbo

Fjöldi eggja:   3 - 6    
Liggur á:       28 - 31  daga
Ungatími:      49 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í byggðum, aðallega á flötum, gróðursnauðum skerjum, stundum á stöpum. Hreiðrið er hraukur úr þangi, fóðrað með fjöðrum og grasi.

Dvelur á veturna með ströndum fram en leitar stundum upp á ferskvatn, ár og vötn.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort