Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        42 - 50 cm 
Þyngd:        1000 g
Vænghaf:   67  -  84 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Húsöndin er einkennisfugl Mývatnssveitar, meðalstór önd með sérkennilegt höfuðlag.

Hvinur heyrist frá vængjum húsanda á flugi. Karlfuglinn er ákaflega aðsópsmikill og fjörugur í biðilsleikjum sínum, sem hann iðkar mestallan fyrri helming ársins. Hann helgar sér svæði á vatni og á oft í erjum við kynbræður sína.

Er lipur sundfugl og heldur sig oft í talsverðum straumi.

Húsöndin er félagslynd utan varptíma.

Fæða: Mýlirfur, krabbadýr og aðrir hryggleysingjar.

Húsönd   -   Bucephala islandica

Fjöldi eggja:   8 - 12    
Liggur á:       28 - 30  daga
Ungatími:      70 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Kjörlendi húsandar er lífrík stöðuvötn og lindár. Hún verpur í holum og gjótum í klettum og hrauni, stundum í þéttum gróðri, veggjum útihúsa (dregur nafn sitt af þeim sið) og varpkössum. Hreiðrið er fóðrað með dúni.

Felli- og vetrarstöðvar eru í sama kjörlendi.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort