Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        69 - 91 cm 
Þyngd:        3500 g
Vænghaf:   127  -  147 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Stór, sterklegur og rennilegur vatnafugl, einn af einkennisfuglum íslenskra heiðavatna.

Himbriminn flýgur með kraftmiklum vængjatökum. Á flugi er hálsinn niðursveigður og fæturnir skaga aftur fyrir stélið.

Hann er fimur sundfugl, mikill kafari og fremur djúpsyndur, þungur til flugs og lendir á maganum en ber ekki fæturna fyrir sig eins og flestir fuglar.

Brúsar geta ekki gengið og koma ekki á land nema til að verpa og skríða þá á maganum til og frá hreiðrinu. Eru venjulega stakir, í pörum eða litlum hópum.

Fæða: Fiskur.

Himbrimi   -   Gavia immer

Fjöldi eggja:   2    
Liggur á:       25 - 30  daga
Ungatími:      56 - 77 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur við vötn og tjarnir með silungi, frá sjávarmáli upp í 600 m hæð. Hreiðrið er stór en grunn laut á vatnsbakka eða í litlum hólma og myndast vel troðin slóð milli hreiðurs og vatns.

Dvelur á veturna við strendur og geldfugl er aðallega á sjó á sumrin.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort