Farðu með músina yfir myndina.
Lengd:        16 - 20 cm 
Þyngd:        50 g
Vænghaf:   38  -  43 cm
Hlusta á fuglahljóð
Skoða myndbandsbút
Skoða myndir
Fróðleikur
Leikir
Um vefinn

Smávaxinn vaðfugl sem einkennir votlendi á sumrin.

Flýgur hratt, í hópum á flugi bregður til skiptis fyrir ljósum kviðnum og brúnu bakinu. Allir fuglarnir í hópnum snúa sér samtímis. Hann stendur fremur hokinn.

Er félagslyndur utan varpstöðva, er þá oft í stórum hópum á leirum og söndum með öðrum vaðfuglum.

Sést oft í fylgd með lóum á vorin og dregur af því nafn sitt, ásamt því að bera svipaðan fjaðurham og lóan.

Fæða: Skordýr, smá skeldýr, sniglar og burstaormar.

Lóuþræll   -   Calidris alpina

Fjöldi eggja:   4    
Liggur á:       21 - 22  daga
Ungatími:      19 - 21 dagar

Varp- og ungatímabil

Varp- og ungatímabil
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Smelltu til að stækka myndina
Verpur í margs konar mýrlendi, forblautu jafnt sem hálfdeigu, en einnig í þurrara graslendi og móum og er þéttasta varpið á Suðurlandsundirlendinu. Hreiðrið er dæld í gróðurlendi, fóðrað með sinu, venjulega vel falið.

Heldur sig utan varptíma mest í fjörum en einnig í votlendi inn til landsins.

Vetrarstöðvar íslenskra fugla eru aðallega í V-Afríku.

Dvalartími á Íslandi
Dvalartími á Ísland
Sumar
Vetur
Útbreiðslukort