
Einn af einkennisfuglum miðhálendisins, nokkru minni en grágæs og hálsinn hlutfallslega styttri. Heiðagæs er félagslynd á öllum tímum árs.
Hún flýgur með hröðum vængjatökum og í þéttum hópum, byltir sér meira og er léttari á flugi en grágæs.
Lítið höfuð og stuttur háls eru einkennandi á flugi.
Fæða:
Mýragróður, grös.
Fjöldi eggja:
4 - 5
Liggur á:
26 - 27 daga
Ungatími:
56 dagar